<$BlogRSDURL$>

Monday, October 11, 2004

Það er komið haustfrí hérna hjá okkur. Við hjóluðum reyndar upp í skóla í dag til að læra, vorum voða dugleg í dag, reyndar svoldið erfitt að vakna en það er nú allt í lagi, gott að sofa aðeins lengur í "fríinu". En mér finnst samt ótrúlegt að klósettin upp í skóla séu ekki þrifin, þó það sé haustfrí því kantínan er opin og það er fullt af fólki sem tekur sér ekkert haustfrí, alla veganna var nóg fólk í matsalnum í kantínu 4 í dag. Klósettið þar við hliðina var frekar skítugt þegar ég ætlaði að fara á það í seinnipartinn í dag, gat ekki hugsað mér að míga þar og lét því Bilka fá að njóta mín. En við urðum að fara þangað og kaupa kornfleks á tilboði, bara 14 kr fyrir 750 gr.

Friday, October 08, 2004

Ég var að rifja upp í dag, þegar ég fór í Kaldársel í viku með Jenný og Addý, man ekki hvað ég var gömul ( ca 8 ára)en þeir sem að mættu vel í KFUM og KFUK gátu fengið ókeypis í Kaldársel, en ég misskildi þetta eitthvað héllt að maður fengi ekki að fara nema mæta vel, og þegar mamma fór að tala um þetta þá var ég alveg viss um að ég ætti ekki næga stimpla til að komast, vissi ekki að það væri líka hægt að borga. Það var alltaf talað um að maður ætti að mæta vel til að komast í Kaldársel.
En við hélldum alla veganna 3 á vit ævintýranna með rútu, já þetta var löng leið út í sveit. Í dag finnst mér þetta bara við hliðina á Hafnarfirði. Þegar við komum á áfangastað þá hlupu allir út liggur við öskrandi, í minningunni er þetta alla veganna svona eins og þegar kúm er hleypt út á vorin. Þeir sem höfðu verið þarna áður vissu alveg hvað þeir áttu að gera, skipta sér í lið, ná bestu kojunum og svo hin vinkonan að ná besta búinu. Já við vissum ekkert að maður ætti að ná besta búinu, vitlausar við. Við fengum ekkert spes bú, en við gerðum það rosa flott, opnuðum veitingastað, seldum þar súpu ( djús með berjum sem við höfðum tínt) fengum nú ekki marga matargesti en við vorum samt sáttar. En það voru 2 stelpur sem höfðu náð langbesta búinu, það var rosalega stórt og flott og þær seldu mjólk, þær áttu hernaðarleyndarmál, mjólkina það er að segja, hún var hvít og í gömlum mjólkurfernum. Við pældum lengi og skildum ekkert hvernig þær töfruðu fram þessi undraverk, mjólkina það er að segja. Ekki gátum við talað til gömlu konuna í eldhúsinu til að gefa okkur mjólk, hún sagði bara nei, en við fengum djús í staðinn sem var svo notað í matsölustaðinn okkar. Jenný var held ég í samningaviðræðum og vorum við ánægðar með djúsið, en hrikalega öfunduðum við þær af mjólkinni. Maður gat keypt af þeim mjólk, við fórum því í leiðangur og Jenný fékk heyrnaðarleyndarmálið hjá þeim, fékk uppskriftina af mjólkinni*, vá hvað við vorum glaðar, jenný var þarna í mínum augum bara eins og James Bond, þvílíkur njósnari.
Rosalega var nú gaman að vera lítill og áhyggjulaus og bara leika sér út í hrauni, samt sko var þvílík samkeppni að eiga flottasta búið og maður var úti í hrauni frá morgni og þangað til kvöldvakan var, rétt skruppum inn í mat. Þó þetta hafi verið kristilegar sumarbúðir man ég satt að segja ekki eina einustu bæn sem ég lærði né fékk með mér neinn kristilegan boðskap þaðan.

*uppskrift af mjólk
hveiti
vatn
hrista svo vel þangað til allt er vel blandað saman




Friday, October 01, 2004

Gummi er að elda kjúkling sem er ekki til frásögur færandi, það er árshátíð í kvöld í skólanum og við erum að fara í mat þangað í kvöld, en ætlum að fá okkur síðbúin hádegisverð núna, hann er semsagt að steikja kjúklingabringur á pönnu. Allt í einu byrjum við að hósta á fullu bæði tvö, náum varla andanum og það logsvíður bara upp í heila, opnuðum alla glugga út og loksins gátum við farið að anda aftur en það tók svoldinn tíma að jafna okkur, mér fannst þetta óeðlilega miklir öndunarerfiðleikar útaf reyknum svo ég spyr nú með hverju hann hafi kryddað þetta. Drengurinn hafði skellt all vel af piri piri kryddi sem er frekar sterkt, hann hafði já ekki sparað neitt og kjúklingurinn þakinn kryddi, ekki skrýtið að við höfum fengið öndunarerfiðleika þegar allt þetta chili og hvað það nú sem er í þessu piri piri kryddi fór að steikjast.
Mér hálf kvíður að borða þennan kjúlla, efast um að það verði margir bitar, en ætla samt að vera tilbúin með vatnskaröfluna við hliðina og gera heiðarlega tilraun til að borða þennan andnauðar kjúkling.

En svo langar mig bara að benda á að hann Gummi þýddi grein úr Rust, og setti á síðuna sína




Thursday, September 30, 2004

Viðvörun mánaðarins!

Var í tíma í gær, þar sem við fengum að fara inn á lab þar sem við vorum svo fá og þar var hann að sýna okkur alls konar tæki og tól og líka myglusveppi. En hann var að vara okkur við að borða mat sem hefur myglað, maður á alltaf að henda honum, ekki bara skera það græna af, sem er bara hluti af sveppinum, hinn hlutinn er t.d. eins á litinn og osturinn og þú sérð hann ekki í ostinu... ojojoj og þeir geta verið sjúkdómsvaldandi. Svo sko ef að sulta myglar þá setur myglusveppurinn trefjarnar í gegnum alla sultuna, ekki nóg að bara skafa af mygluna, henda matnum ef hann myglar. Ég geri það reyndar alltaf en Gummi hefur alltaf borðað mygluna, nú fær hann það ekki!!!!
Semsagt pointið er, ekki éta neitt sem er grænt.... henda öllum matnum

Saturday, September 25, 2004

Hola chica/chico!
Það er nú líklegast komin tími til að skrifa eitthvað hingað inn, en þar sem ég er á hraðferð verður ekki mikið um skrifin í þetta skiptið. Við Gummi vorum nefnilega svo heppin að okkur er boðið í lambalæri til Fredericia, hlökkum rosa til að fara þangað í mat.
Svo um næstu helgi er ársfestin í skólanum, og ég er rosalega heppin verð ein af 2 stelpum á borðinu, en svona er það víst að eiga kærasta sem er í kalla námi, það eru ekki margir sem ætla í matinn úr gamla bekknum mínum, veit bara um 2 og þau ætla að sitja á Kemi borðinu, þannig að maður verður bara að láta tölvunörrana duga.
Það getur líka verið að það komi til mín gestur um næstu helgi frá köben, sem verður þá bara gaman, ætla þá að sýna gestinum næturlífið í Odense.

kveðja Bryndís



Monday, September 20, 2004

Ég ætla aldrei að taka lyftuna aftur!!!!!

Þetta er reyndar í 3 skiptið sem að Gummi segir þetta, spurning hvort að hann standi við það. En hann hefur semsagt fests 3 í lyftunni hérna heima en þetta er í fyrsta skiptið mitt. Gummi varð frekar pirraður strax þar sem að þetta er nú ekki fyrsta skiptið hans og hann var að verða of seinn á fótboltaleik, hann var með búningana svo að það yrðu bara naktir karlmenn út á túni á raskinu án hans.
En við semsagt dúsuðum þarna í meira en klt tíma, nánar tiltekið klt og korter, við vorum búin að hringja 3 sinnum inn í alarm centralið og alltaf voru þeir bara að leggja af stað, seinasta skiptið voru þeir reyndar bara lige på trapperne. Gummi ofurtröllið var alveg komið með nóg þarna og fór að reyna að þvinga hurðina upp og ég bara passaðu að klemma þig ekki, sem ég hafði reyndar varað hann við strax í byrjun og bað hann vinsamlegast að eyðileggja nú ekki lyftuna hahaha.... En alla veganna hann semsagt opnaði bara hurðina með handafli og við bara hlupum upp, nenntum sko ekkert að bíða þarna lengur eftir helvítis druslu alarmcentralinu, við ætlum bara að tala við portnerinn og segja að við höfum flúið vettvanginn.
Við vitum alla veganna næst hvernig við eigum að komast út, allt er þegar 3 er ekki satt???


Thursday, September 16, 2004

Tad er margt buid ad gera sidan eg bloggadi seinast, en eg ætla bara ad stikla a storu....

kaupstadarferd til hofudborgarinnar ( t.e.a.s. kaupmannahafnar)
Afmælisveislu/innflutningsparty
Saumaklubbur a gomlu kollegiunni
og nuna er stefnt ad tvi ad fara loksins ad setja upp ljos i nyju ibudinni
nadi mer i svæsna halsbolgu


annars er nu adal umræduefnid og sludrid nuna ad Joakim og Aleksandra eru skilin, en hun fær samt ad halda prinsessu titlinum, eg hellt nu ad hofid væri ad tilkynna ad mary væri olett en neinei ekkert svoleidis......

This page is powered by Blogger. Isn't yours?